Föstudaginn 23. janúar 2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.


Mætt voru:

  • Kristín Thorarensen (KT)
  • Lovísa Jónsdóttir (LJ)
  • Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)
  • Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
  • Hrannar B Eyjólfsson (HBE)
  • Alexandra Briem (AB)

Fundinn sat einnig  Jóhannes Rúnarsson (JR) og Sigurborg Þórarinsdóttir sem ritaði fundargerð.


1. Skúlagata - upplýsingar

Framkvæmdastjóri fór yfir hvaða aðgerða hefur verið gripið til á endastöðinni á Skúlagötu. Farið var yfir hljóðmælingar á vögnum, en þær gefa til kynna að hávaði sé innan marka.

Stjórn felur framkvæmdastjóra, að höfðu samráði við Reykjavíkurborg, að kanna hvaða úrræði standa til boða við endastöðina á Skúlagötu.


2. Frítt fyrir ungmenni – tillaga frá ungmennaráðum - ákvörðun

Tekin fyrir tillaga frá ungmennaráði Kópavogs og ungmennaráði Grafarvogs um frítt fyrir ungmenni í Strætó.  Áætluð skipting kostnaðar eftir sveitarfélögum má sjá í meðfylgjandi töflu.

Áætluð kostnaðarskipting ef frítt upp að 16 ára aldri – Árið 2026

Áætlaðar tekjur af 12 -15 ára. – 300.000.000

3. Straeto.is

Framkvæmdastjóri fór yfir uppfærslu á vef straeto.is. Vefurinn verður notendavænni og upplýsingar til viðskiptavina betri og markvissari.

4. Öryggismál vagna

Framkvæmdastjóri fór yfir niðurstöður rannsóknar sem Ruter  sem er almenningssamgöngufyrirtæki í Osló gerði á Yutong vögnum. Farið var yfir hvaða ráðstafana Strætó hefur gripið til. Stjórnendur Strætó meta áhættu af misnotkun gagna eða vagna litla miðað við fyrirliggjandi upplýsingar.

5. Nýtt félag

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefna og samninga vegna stofnunar nýs félags.

6. Ársfundur og aðalfundur Strætó

Stefnt er að því að ársfundur og aðalfundur Strætó verði haldnir 26. mars 2026.

7. Fundur ungmennaráði Reykjavíkur - upplýsingar

Alexandra og framkvæmdastjóri fóru yfir fund með ungmennaráðum Reykjavíkur.

Fundi slitið 09:25.