Áætlun nokkurra landsbyggðarleiða mun breytast yfir sumartímann. Leiðir á höfuðborgarsvæðinu haldast óbreyttar.
Suðurland
Leiðir 51 og 53
Breytt áætlun frá föstudeginum 5. júní til og með sunnudagsins 23. ágúst vegna sumaráætlunar Herjólfs.
Leið 52 mun ekki stoppa á biðstöðinni FSU yfir sumartímann en tímataflan helst óbreytt.
Aukaferðir yfir Þjóðhátíð á leiðum 51 og 53 verða kynntar síðar.
Vesturland
Leið 81
Enginn akstur frá og með 1. júní, leiðin hættir akstri og hefst því ekki að nýju eftir sumarið.
Leiðir 63, 64 og 65
Akstur er skv. skóladagatali og er því síðasti dagur í akstri 18. maí.
Leið 59
Ferð á miðvikudögum breytist og fer alla leiðina í Hólmavík (í stað þess að enda í Búðardal) frá og með 5.júní til og með 30.ágúst.
Norðurland
Leið 56
Ekur alla virka daga, auka sunnudaga, frá 1. júní til og með 31. ágúst.
Leiðir 78 og 79
Sumaráætlun frá 1. júní – 16. ágúst.
Breyting frá vetraráætlun er að ekki komið við á þessum stoppistöðum:
- VMA
- Þórunnarstræti/Sjúkrahús
- Dalsbraut/Klettaborg
Aðeins er komið við hjá Hofi á Akureyri auk flugvallarins sem er endastöð.
Vestfirðir
Leið 62
Sumaráætlun frá 1. júní – 31. ágúst.
Tímataflan mun breytast yfir sumarið, fyrsta er í gildi frá 1. júní – 5. júlí, næsta frá 6. júlí – 14. ágúst og síðasta frá 15. ágúst – 31. ágúst. Tímatöflurnar taka mið af siglingaáætlun Baldurs yfir sumartímann.
Enginn akstur verður á leið 61 þar sem hún er hætt.
Austfirðir
Leið 94
Sumaráætlun er frá 1. júní – 30. september. Í sumar mun leiðin aka á milli Breiðdalsvíkur og Hornafjarðar með viðkomu á Djúpavogi.