Fréttir
10. ágúst 2026

Samstaða og fögnuður í Gleðigöngunni

Strætó tók þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga líkt og undanfarin ár og óhætt er að segja að gleðin hafi verið allsráðandi.

Við hönnun Gleðivagnsins var ákveðið að fagna regnboganum, enda slagorð Hinsegin daga í ár Sameinumst undir regnboganum. Vagninn var því skreyttur regnbogalitunum frá toppi til táar og vakti mikla lukku í göngunni. Auglýsingastofan Hér&Nú sá um hönnun Gleðivagnsins og útkoman var sannarlega litrík og glæsileg.

Annað árið í röð bauð Strætó skynsegin fólki að vera um borð í Gleðivagninum á meðan á göngunni stóð. Þar gafst tækifæri til að taka þátt í gleðinni úr rólegra og þægilegra rými og draga þannig úr áreiti.

Í Strætó erum við öll á mismunandi leiðum, en saman getum við ferðast öll í sömu átt – að jöfnu, fjölbreyttu og kærleiksríku samfélagi.

Við óskum Hinsegin dögum til hamingju með vel heppnuð hátíðarhöld og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábæran dag.