Á morgun 16. september hefst Evrópsk samgönguvika en hún stendur til 22. september.
Vikan er haldin til að hvetja fólk til að nota fjölbreytta ferðamáta sem eru í senn vistvænir, hagkvæmir og heilsusamlegir. Þema vikunnar í ár er Samgöngur fyrir öll – þvert á kynslóðir.
Á höfuðborgarsvæðinu hefst vikan á Samgönguráðstefnu á vegum ITS-Ísland og lýkur á bíllausa deginum þar sem frítt verður í Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Fólk er hvatt til að nýta sér fjölbreytta og sjálfbæra samgöngumáta í vikunni en fjölbreytta viðburði í tilefni vikunnar má kynna sér á Facebook síðu samgönguviku.