Vegna breytinga á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu munu Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) taka við rekstri greiðslukerfisins Klappsins af Strætó bs. þann 1. júlí 2026.
Af því tilefni flytjast persónuupplýsingar notenda Klappsins frá Strætó til ASHB svo unnt sé að tryggja áframhaldandi rekstur þjónustunnar, þar á meðal aðgang notenda að reikningum sínum, farmiðum og áskriftum í Klappinu. Eftir miðlunina verður ASHB ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í Klappinu.
Breytingin hefur ekki áhrif á notkun Klappsins eða þjónustu við viðskiptavini.
Miðlun persónuupplýsinga er nauðsynleg til að tryggja samfellu í þjónustu við notendur Klappsins, þar á meðal aðgang að gildum farmiðum, áskriftum og notendareikningum. Miðlunin byggir á lögmætum hagsmunum Strætó og ASHB. Heimild til þessa er í 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Notendur eiga rétt á að andmæla þeirri vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og skulu andmæli berast á netfangið personuvernd@straeto.is eigi síðar en 28. júní 2026. Berist andmæli verður brugðist við þeim í samræmi við skjalfest verklag Strætó.
Verði andmæli tekin til greina kann það að leiða til þess að ekki verði unnt að flytja upplýsingar um notendareikning, farmiða eða áskriftir til ASHB. Notandi mun þá þurfa að stofna nýjan notendareikning að Klappinu til að nýta sér þjónustuna eftir yfirtökuna.
Hafi notendur engar athugasemdir við tilfærsluna þurfa þeir ekkert að gera. Breytingin hefur engin áhrif á réttindi þeirra eða áframhaldandi notkun Klappsins.
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga, réttindi notenda og varðveislu upplýsinga má finna í persónuverndaryfirlýsingu Klappsins.