Fréttir
31. ágúst 2026

Ný leið á Vestfjörðum bætist við landsbyggðarstrætó

Leið 66 bætist nú við leiðakerfi landsbyggðarinnar en leiðin ekur um Patreksfjörð, Tálknafjörð, Bíldudal og að Bíldudalsflugvelli. Leiðin hefur akstur 1. september.

Leið 66 ekur í takt við gildandi flugáætlun Norlandair á Bíldudal. Leiðin ekur ekki fyrir aukaflugferðir Norlandair sem er utan útgefinnar flugáætlunar.

Vagninn fer skv. tímatöflu en með fyrirvara um breytta flugáætlun Norlandair, t.a.m. vegna færðar yfir vetrartímann. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með flugáætlun ef færð og veður spillist.

Tímatafla leiðar 66

Leið 66