NaviLens verkefni Strætó, sem auðveldar blindum, sjónskertum og öðrum að nota almenningssamgöngur með sérhönnuðum kóðum við biðskýli, hlutu ITS verðlaunin 2026 á Samgönguráðstefnunni sem haldin var í gær, 16. september.
Í umsögn dómnefndar kom fram að lausnin nýti snjalla tækni og rauntímaupplýsingar til að efla sjálfstæði blindra og sjónskertra og gera almenningssamgöngur aðgengilegri fyrir alla.
Með notkun NaviLens kóða geta blindir og sjónskertir farþegar sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó. Í gegnum NaviLens smáforritið eru upplýsingarnar lesnar upphátt og þannig geta notendur nálgast rauntímaupplýsingar um ferðir án utanaðkomandi aðstoðar.
Lausnin nýtist þó ekki aðeins blindum og sjónskertum. Hún getur einnig auðveldað sjáandi farþegum, ferðamönnum, fólki sem ekki talar íslensku og fólki með lestrarerfiðleika að nálgast upplýsingar. Verkefnið sýnir þannig hvernig góðar aðgengislausnir geta gagnast fjölbreyttum hópi farþega og stuðlað að jafnara aðgengi að almenningssamgöngum.
Samstarf um betra aðgengi
Verkefnið er samstarfsverkefni Blindrafélagsins og Strætó. Strætó leiðir verkefnið og eru NaviLens-kóðarnir í eigu og á ábyrgð Strætó.
Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið frá upphafi, bæði við skipulag og framkvæmd, og starfsfólk borgarinnar hefur séð um uppsetningu kóða á skýli og staura í borginni. Síminn/Billboard hefur jafnframt lagt verkefninu lið með því að setja upp NaviLens-kóða á öll skýli sem eru á þeirra vegum.
Verðlaunin eru því einnig viðurkenning á mikilvægu samstarfi þessara aðila við að gera upplýsingar og almenningssamgöngur aðgengilegri fyrir alla.

