Farþegar Strætó fá nú nákvæmari upplýsingar um ferðir og komur vagna með nýrri uppfærslu og samræmingu á kerfum sem halda utan um rauntímaupplýsingar. Sömu upplýsingar birtast nú í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple.
Með uppfærslunni taka komuspár mið af fleiri þáttum en áður, t.d. hjáleiðum, sem hafa áhrif á aksturinn. Farþegar fá því nú nákvæmari og áreiðanlegri upplýsingar um hvenær næsti vagn kemur.
Betri rauntímaupplýsingar eru liður í því að bæta stöðugt þjónustu við farþega Strætó. Á síðustu misserum hafa ýmsar nýjungar verið innleiddar sem stuðla að aðgengilegri og áreiðanlegri almenningssamgöngum. Farþegar geta nú m.a. einnig greitt fyrir ferðir snertilaust með greiðslukorti, Google Pay eða Apple Pay um borð í vögnum og skipulagt ferðir með vinsælum korta-öppum eins og Google Maps eða Apple Maps.