Hægt að sækja um frá og með 18. júní
Reykjavíkurborg býður börnum fædd á árunum 2010–2014 með lögheimili í Reykjavík tveggja mánaða gjaldfrjálsa Strætó-áskrift. Verkefnið er liður í aðgerðum Reykjavíkurborgar til að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli foreldra vegna skóla-, íþrótta- og frístundastarfs.
Forsjáraðilar geta sótt um fría tveggja mánaða áskrift á Mínum síðum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 18. maí til og með 30. júní 2026.
Börn sem þegar eru með virkt tímabilskort hjá Strætó geta einnig fengið tvo auka mánuði bætta við sinn Klapp aðgang, en sækja þarf sérstaklega um það í sama umsóknarformi á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.
Þetta framtak er á vegum Reykjavíkurborgar en borgin mun gefa upp nánari upplýsingar á vef sínum. Jafnframt munu forsjáraðilar reykvískra barna á þessum aldri fá hnipp frá island.is þann 18. maí með tengli á umsóknarformið.