Strætó eykur þjónustu sína á næstu dögum með talsverðum breytingum á leið 8, Háskólaleiðinni, með nýjum viðkomustöðum og fleiri skiptimöguleikum. Breytingin tekur gildi 15. október nk. en með henni verða háskólarnir í Vatnsmýrinni og stórir vinnustaðir á svæðinu betur tengdir hverjir öðrum og miðborginni en áður.
Leið 8 hefur verið lengd og mun framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar líkt og áður. Breytingin auðveldar m.a. nemendum og starfsfólki að skipta milli vagna og fjölgar skiptimöguleikum verulega auk þess sem hún bætir til samgöngur milli háskólanna tveggja og stórra vinnustaða sem finna má á svæðinu. Leið 8 gengur á 10 mínútna fresti á morgnanna og síðdegis á virkum dögum þegar umferð er mest.
Viðbótin er um leið skref í átt að breyttu leiðarkerfi vegna innviðaframkvæmda við Fossvogsbrú og á Nauthólsvegi. Þegar Fossvogsbrú verður tekin í gagnið árið 2028 er fyrirhugað að leið 8 aðlagi sig að fyrirhugaðri borgarlínuleið og aki um Skúlagötu að háskólunum tveimur, eftir Fossvogsbrú og að Hamraborg áður en hún fer um Kópavog.
Þessar breytingar eru liður í stöðugri þróun almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins sem miða að því bæta þjónustu við farþega Strætó og taka markviss skref í átt að traustum og áreiðanlegum almenningssamgöngum.
