Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um akstur og opnunartíma Strætó þann 1. maí.

Nánari upplýsingar um hjáleiðir vegna tímabundinna götulokana í Reykjavík í tengslum við kröfugöngu 1. maí verða birtar undir Staða á ferðum þegar nær dregur.

Höfuðborgarsvæðið

  • Ekið verður samkvæmt sunnudagsáætlun.

Landsbyggðin

  • Ekið verður samkvæmt laugardagsáætlun.
  • Enginn akstur verður á leiðum 91 92, 93 og 96 á Austfjörðum.
  • Leið 94 ekur skv. föstudagsáætlun.

Athugið að hægt er að sjá allar tímatöflur fyrir þennan dag á öllum leiðum undir tímatöflur.


Móttaka Strætó verður lokuð þann 1. maí en þjónustuverið er opið frá kl. 10:00 – 14:00.