Fimmtudaginn 17. september  2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 12:00.


Mætt voru: 

  • Guðmundur Jóhann Jónsson (GJJ)
  • Kristín M. Thoroddsen (KMT)
  • Guðný María Jóhannsdóttir (GMJ)
  • Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ)
  • Birkir Guðlaugsson (BG)
  • Elísabet I. Einarsdóttir (EIE)

Fundinn sátu einnig  Jóhannes Rúnarsson (JR) og Sigurborg Þórarinsdóttir (SÞ) sem ritaði fundargerð.


1. Árshlutauppgjör - janúar til júní 2026

Framkvæmdastjóri kynnti árshlutauppgjör janúar til júní 2026. Uppgjörið er óendurskoðað. Tekjur eru í samræmi við áætlun en frávik er í aðkeyptum akstri, sem verður viðvarandi út árið.

Stjórn samþykkir árshlutauppgjörið með rafrænni undirritun.


2. Drög að fjárhagsáætlun

Eigendafundur þann 9. september fjallaði um fjárhagsáætlun Strætó bs. fyrir árið 2027 og óskað var eftir nánari upplýsingum og gögnum. Framkvæmdastjóri lagði fram drög að fjárhagsáætlun ásamt viðbótargögnum til nánari skýringar.

Framkvæmdastjóra var falið að boða til eigandafundar í samráði við SSH í október.


3. Fjármál Strætó

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu fjármála út árið og samstarf ASHB og Strætó við að tryggja hnökralaust ferli á komandi misserum. Lausafjárstaða Strætó er þröng og unnið er í sameiningu að því að tryggja farsæla lausn og nauðsynlegt fjármagn til áframhaldandi reksturs.


4. Pant

Farið var yfir stöðu Pant, þar á meðal framlög vegna þjónustunnar og áætlaða þóknun fyrir árið 2027. Fyrirhugaður er fundur með fjármálastjórum sveitarfélaganna um frekari samstarf í rekstri akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, fötluð skólabörn og aldraða.


5. Stefnur Strætó

Í samræmi við ákvörðun síðasta stjórnarfundar lagði framkvæmdastjóri fram tillögu að nýju hlutverki og stefnu Strætó, með hliðsjón af breyttu hlutverki félagsins.

Stjórn samþykkti framlagða stefnu og óskaði jafnframt eftir að niðurstöður reglulegra mælinga á starfsánægju verði kynntar stjórn með reglubundnum hætti.


6. Starfsáætlun 2026

Framkvæmdastjóri lagði fram drög að starfsáætlun fyrir árið 2026. Samþykkt.


7. Önnur mál

Rætt var um mikilvægi þess að undirbúa með markvissum hætti lokatímabil starfsemi félagsins. Samþykkt var að útbúa aðgerðaáætlun vegna lokunar félagsins, þar sem meðal annars verði skilgreind helstu verkefni, ábyrgð og nauðsynlegar aðgerðir fram að slitum ásamt lánaskuldbindingum sem sveitarfélögin taka yfir við slit Strætó í samræmi við eignarhluta sinn í félaginu í lok árs 2028. Framkvæmdastjóri tekur saman minnisblað um skuldbindingar sem sveitarfélögin taka yfir, en um er að ræða að mestu langtímalán vegna lífeyrissjóðsuppgjörs og langtímalán vegna fjárfestingar í rafvögnum, staða þeirra í árshlutauppgjöri 30. júní 2026 er 1.488 milljónir króna.

Fundi slitið kl.  13:15.