Föstudaginn 28. ágúst 2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 12:00.
Mætt voru:
- Guðmundur Jóhann Jónsson (GJJ)
- Kristín M. Thoroddsen (KMT)
- Guðný María Jóhannsdóttir (GMJ)
- Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ)
- Birkir Guðlaugsson (BG)
- Elísabet I. Einarsdóttir (EIE)
Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR) og Sigurborg Þórarinsdóttir (SÞ) sem ritaði fundargerð.
1. Kynning á Strætó
Lögð voru fram staðfestingarbréf frá eigendum Strætó um kosningu stjórnarmanna. Frá Reykjavík var Guðný María Jóhannsdóttir tilnefnd sem aðalmaður og Friðjón R. Friðjónsson sem varamaður, frá Kópavogi var Guðmundur Jóhann Jónsson tilnefndur sem aðalmaður og Andri Steinn Hilmarsson sem varamaður, frá Hafnarfirði var Kristín M. Thoroddsen tilnefnd sem aðalmaður og Karólína Helga Símonardóttir sem varamaður, frá Garðabæ var Birkir Guðlaugsson tilnefndur sem aðalmaður og Björg Fenger sem varamaður, frá Mosfellsbæ var Gylfi Þór Þorsteinsson tilnefndur sem aðalmaður og Hjörtur Örn Arnarson sem varamaður og frá Seltjarnarnesi var Elísabet Ingunn Einarsdóttir tilnefnd sem aðalmaður og Magnús Benediktsson sem varamaður. Stjórn skipaði í embætti og var Guðmundur Jóhann Jónsson, frá Kópavogi kosinn stjórnarformaður og Guðný María Jóhannsdóttir varaformaður stjórnar.
Framkvæmdastjóri fór lauslega yfir nýtt hlutverk Strætó, en nýtt félag Almenningsamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., (ASHB) tekur að fullu yfir hluta af verkefnum Strætó þann 1. október n.k. Strætó mun vinna í samvinnu við ASHB þar til aksturhluti Strætó hefur verið boðinn út. Gert er ráð fyrir að nýr aðili taki við þeim hluta eftir útboð seint á árinu 2028. Strætó hefur sinnt akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, fötluð skólabörn og aldrað fólk fyrir fjögur af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu með þjónustusamningi. Verið er að skoða framtíðarfyrirkomulag á þeirri þjónustu.
2. Verkefni næstu ára
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna á verkefnum tengdum stofnun nýs félags um almenningssamgöngur og helstu verkefnum og áskorunum tengdu því. Farið var yfir stöðu framlaga frá eigendum.
Framkvæmdastjóri lagði fram og kynnti árshlutauppgjör fyrir janúar til júní.
3. Stjórn og starfsáætlun
Ákveðið var að halda stjórnarfundi mánaðarlega, að jafnaði þriðja fimmtudag hvers mánaðar í hádeginu. Næsti fundur verður 17. september.
Stjórn samþykkti tillögur framkvæmdastjóra að ræða við Deloitte um innri endurskoðun. Rætt var um mikilvægi þess að tryggja stöðugleika í starfsmannahaldi á lokatímabili starfseminnar og að skapa starfsfólki góðar forsendur til að ljúka verkefnum sínum.
Jafnframt var rætt um gerð starfsáætlunar stjórnar og framkvæmdastjóra falið að leggja fram drög að henni.
Fundi slitið kl. 13:00.