Miðvikudaginn 13. maí  2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.


Mætt voru: 

  • Kristín Thoroddsen (KT)
  • Lovísa Jónsdóttir ( LJ)
  • Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson (HBE)
  • Alexandra Briem (AB)
  • Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)

Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR), framkvæmdastjóri, og Sigurborg Þórarinsdóttir ( SÞ) sem ritaði fundargerð.


1. Árshlutauppgjör janúar til mars

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna á árshlutuppgjöri fyrir janúar til mars.  Stýrihópurinn um rekstur almenningssamgangna hefur fjallað um greiðslu framlaga vegna ársins 2025, en skv. samkomulagi er gert ráð fyrir að framlög standi undir rekstri almenningsamgangna og umframgreiðsla framlaga verði endurgreidd.  Niðurstaða stýrihóps liggur ekki fyrir. Árshlutauppgjörð verður lagt fyrir næsta stjórnarfund.


2. Nýtt félag- eignamat og staðan

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna á verkefnum tengdum stofnun nýs félags um almenningssamgöngur. Helstu verkefni eru að klára eignamat og hvernig högun straeto.is  verður þar til nýtt félag hefur markað sína sýn. Varðandi eignamat vill stjórn ítreka  að beitt sé viðurkenndri aðferðarfræði við verðmat eigna sem flytjast til ASHB og að það sé framkvæmt af óháðum sérfræðingi, sem aðilar koma sér saman um. Mikilvægt er að útreikningar séu kláraðir hratt og rétt með fagmennsku að leiðarljósi. Áður en ákvörðun um lén verður tekin ítrekar stjórn Strætó að framkvæmt sé áhættumat og þarfagreining á áhrifum þess að nýtt félag taki yfir lén Strætó og það mat verði lagt fyrir stjórn Strætó.

Fundi slitið kl. 8:30.