Föstudaginn 17. apríl 2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.
Mætt voru:
- Kristín Thoroddsen (KT)
- Lovísa Jónsdóttir ( LJ)
- Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
- Hrannar Bragi Eyjólfsson (HBE)
- Alexandra Briem (AB)
- Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)
Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR), framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Nýtt félag - staðan
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu verkefna og tilfærslu þeirra til nýs félags. Lagt var fram vinnuplagg um stöðu rekstrarframlaga eigenda fyrir árið 2025 og meðferð þeirra.
2. Fargjaldatekjur
Fargjaldatekjur á fyrsta ársfjórðungi eru um 1% undir áætlun. Sala tímabilskorta er undir áætlun en stöðugur vöxtur er í snertilausum greiðslum.
3. Gjaldskrármál
Lagt var fram bókun bæjarráðs Hafnarfjarðar dagsetta 30. mars 2026. Málinu vísað til umræðu eigenda. Fulltrúi Seltjarnarness í stjórn Strætó bókar að hann óski eftir að málið verði rætt í samhengi við samþykkta og núgildandi eigandastefnu Strætó, sér í lagi lið 4.2 sem fjallar um rekstrarmarkmið og fargjaldastefnu fyrirtækisins.
4. Þjónustukannanir
Markús Vilhjálmsson, fór yfir niðurstöðu hulduheimsókna og fjölmiðlaskýrslu Strætó fyrir árið 2025.
5. Áhættustýring
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri fóru yfir breytingar á áhættustýringu hjá Strætó í framhaldi af breytingum sem verða á starfseminni. Stjórn samþykkir nýja áhættustefnu.
6. Strætó í Gufunes
Lagt var fram minnisblað um hugmyndir að útfærslu Strætó í Gufunes. Stjórn samþykkir að vísa málinu til borgarstjórnar Reykjavíkur.
7. Greiðslur
Málefnið lagt fram til kynningar.
8. Uppgjör
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna. Stjórn samþykkir að heimila framkvæmdastjóra að klára málið í samræmi við umræður á fundinum.
Fundi slitið kl. 9:30.