Föstudaginn 20. mars 2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.
Mætt voru:
- Kristín Thoroddsen (KT)
- Lovísa Jónsdóttir ( LJ)
- Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
- Hrannar Bragi Eyjólfsson (HBE)
- Alexandra Briem (AB)
Magnús Örn Guðmundsson (MÖG) boðaði forföll. Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR), framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Árlegt árangursmat stjórnar
Árlegt árangursmat stjórnar verður sent út til stjórnarmanna á næstunni.
2. Nýtt félag
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála. Vinnuhópur stjórnar hefur fundað um málefnið. Verið er að ræða útfærslu á fjölda atriða. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður.
3. Ársreikningur 2025
Framkvæmdastjóri og Elísa Kristmannsdóttir, fjármálastjóri, kynntu niðurstöður ársreiknings 2025. Rekstrarafkoma er jákvæð og fjárhagslegar stærðir eru að þróast í rétta átt. Sigrún Guðmundsdóttir frá endurskoðunarnefnd fylgdi eftir áliti endurskoðunarnefndar á ársreikningi. Bjarni M. Jóhannesson, endurskoðandi frá Grant Thorton, fór yfir vinnu ytri endurskoðenda við endurskoðun á ársreikningi Strætó.
Stjórn samþykkir framlagðan ársreikning og staðfestir með rafrænni undirritun.
4. Innri endurskoðun
Sara Fönn Jóhannsdóttir, Lovísa Sigurðardóttir og Jóna Hrönn Benediktsdóttir frá Deloitte komu á fundinn og fóru yfir drög að innri endurskoðun hjá Strætó.
5. Umræður um gjaldskrá
Framkvæmdastjóri fór yfir drög að minnisblaði um ungmennafargjöld. Jafnframt var kynnt staða vinnu við breytingar á tímabilskortum.
6. Uppgjör við verktaka
Framkvæmdastjóri kynnti ítarlega greiningu á áhrifum breytinga á vísitölum sem notaðar eru til verðbóta aksturssamninga við verktaka Strætó. Framkvæmdastjóra var falið að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Fundi slitið kl. 09:35.