Föstudaginn 10. mars 2026 var haldinn fjarfundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 12:00.
Mætt voru:
- Kristín Thoroddsen (KT)
- Lovísa Jónsdóttir ( LJ)
- Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)
- Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
- Hrannar Bragi Eyjólfsson (HBE)
- Alexandra Briem (AB)
Fundinn sátu einnig Jóhannes Rúnarsson (JR), framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
1. Hleðsluútboð
Guðmundur Siemsen, lögmaður og Hrafn L Guðjónsson, ráðgjafi frá Enord, komu á fundinn og fóru yfir niðurstöðu samkeppnisútboðs á hleðslustöðvum vegna orkuskipta í almenningssamgögnum. Tilboð bárust frá 3 aðilum.
Stjórn heimilar framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Icelandia í samræmi við tillögu valnefndar.
Fundi slitið kl. 12:45.