Föstudaginn 13. febrúar 2026 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.
Mætt voru:
- Kristín Thorarensen (KT)
- Lovísa Jónsdóttir (LJ)
- Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)
- Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
- Hrannar B Eyjólfsson (HBE)
- Alexandra Briem (AB)
Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR) og Sigurborg Þórarinsdóttir sem ritaði fundargerð.
1. Ungmennafargjöld
Lögð var fram útskrift úr fundargerð Reykjavíkurborgar, dagsett 3.2.2026 um að gjaldfrjálst verði í Strætó fyrir reykvísk ungmenni á grunnskólaaldri. Umræður urðu um málið, stjórn óskar eftir minnisblaði um málið í samræmi við umræður á fundinum.
2. Ungmenni á Kjalarnesi
Frá og með síðustu áramótum var aðskilið alveg á milli greiðslukerfa í landsbyggðarstrætó og höfuðborgarstrætó. Hefur haft áhrif á ungmenni á Kjalarnesi sem þurfa nú að greiða fargjald í bæði kerfin. Á sama tíma verður tíðni leiðar 29 aukin upp á Kjalarnes til að koma á móts þarfir íbúa Kjalarness.
3. Lífeyrissjóðsuppgjör
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu á lífeyrissjóðsmálum tengt uppgjöri Strætó gagnvart Reykjavíkurborg og lífeyrissjóðnum Brú. Stjórn felur framkvæmdarstjóra að óska eftir frekari gögnum og ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Fjármál Strætó
Framkvæmdastjóri fór yfir sölutekjur í janúar en tekjur eru um 2% undir áætlun. Jafnframt var farið yfir stöðu uppgjörsmála við akstursaðila vegna seinkana í leiðarkerfinu og áhrif kílómetragjalds á uppgjör. Kostnaður Strætó er sambærilegur fyrir og eftir breytingu, þó eykst lítillega kostnaður við rekstur rafvagna með upptöku kílómetragjalds.
5. Pant yfirlit
Sturla Halldórsson, deildarstjóri Pant, kom á fundinn og fór yfir tölfræði ársins 2025. Farið var yfir skýrslu um samanburð akstursþjónustu milli sveitarfélaga, sem stjórn SSH óskaði eftir. Framkvæmdastjóri sendir skýrsluna á SSH.
6. Ábendingar ytri endurskoðenda
Framkvæmdastjóri lagði fram viðbrögð stjórnenda Strætó við ábendingum ytri endurskoðenda.
7. Stefnuráðsfundur
Boðað hefur verið til stefnuráðsfundar Strætó þann 20.2 n.k. Umræður um málið.
8. Nýtt félag - staðan
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðuna og hvað væri fram undan.
9. Reykjavegur - endastöð
Fjöldi vagna á endastöð leiðar 15 í Mosfellsbæ er meiri en stöðin ræður við. Í samráði við akstursaðila hefur verið leitað leiða til að fækka þeim, en ljóst er að þörf er á bílastæðum á stæðunum til að leggja vögnum. Stjórn felur framkvæmdastjóra að leita leiða til að leysa þetta og óska eftir lóð þar sem hægt er að leggja tímabundið vögnum.
Fundi slitið 09:45.