Föstudaginn 9. maí 2025 var haldinn fundur í stjórn Strætó bs. og hófst hann kl. 07:30.


Mætt voru:

  • Kristín María Thoroddsen (KMT)
  • Lovísa Jónsdóttir (LJ)
  • Magnús Örn Guðmundsson (MÖG)
  • Andri Steinn Hilmarsson (ASH)
  • Hrannar B Eyjólfsson (HBE)
  • Alexandra Briem (AB).

Fundinn sat einnig Jóhannes Rúnarsson (JR) og Sigurborg Þórarinsdóttir (SÞ) sem ritaði fundargerð.


1. Almenningssamgöngur ohf.

Kynning fór fram á stöðunni og þeim verkefnum sem eru framundan. Lagt til að formlegur vinnuhópur verði stofnaður um verkefnin sem framundan eru, sbr. stjórnarfund í febrúar 2025.

Vilhjálmur Alvar og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjórar frá Expectus, taka sæti á fundinum undir þessum lið.


2. Árshlutauppgjör janúar til mars 2025

Árshlutauppgjör fyrir janúar til mars 2025 lagt fram til samþykktar. Helstu frávik frá áætlun eru í fargjaldatekjum og öðrum rekstrarkostnaði, sérstaklega öryggisgæslu.

Stjórn vill bóka að óásættanlegt sé að Strætó þurfi að halda upp öryggisgæslu á einni helstu stoppustöð Strætó til að tryggja öryggi starfsmanna og farþega og skorar á félagsmála- og löggæsluyfirvöld að grípa til viðeigandi ráðstafana strax.

Elísa Kristmannsdóttir, fjármálastjóri, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Stjórn samþykkir árshlutauppgjör.


3. Forgangsaðgerðir

Lögð fram greining Eflu á töfum farþega í leiðakerfinu og hvar brýnast er að grípa til aðgerða.

Ragnheiður Einarsdóttir, deildarstjóri skipulags- og leiðakerfis, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

4. Útboð á hleðsluinnviðum

Lagt fram minnisblað um útboð á hleðsluinnviðum ásamt drögum að útboðsgögnum fyrir hleðsluinnviði.

Framkvæmdastjóra falið að bjóða út hleðsluinnviði í samræmi við minnisblað.

5. Ársfundur Strætó

Ákveðið að hafa ársfund Strætó fyrir árið 2024 í Tjarnarsal, Ráðhúsi Reykjavíkur, þann 4. júní frá kl. 14:00.

Fundi slitið kl. 9:40.