Við viljum vekja athygli viðskiptavina sem nota tímabilskort eða miða í Klapp appinu á því að einstaka Android notendur hafa lent í því að veskið í símanum taki yfir QR kóðann í appinu þegar síminn er borinn að skannanum og greiða þannig fyrir stakan miða með snertilausri greiðslu.
Ávallt þarf að vera búið að opna QR kóðann í appinu áður en gengið er um borð. Þegar QR kóðinn er opnaður læsist skjár símans sjálfkrafa.
Í einstökum Android símum virðist skjárinn þó ekki læsast eins og til er ætlast. Í þeim tilvikum getur veski símans tekið yfir og skuldfært snertilaust af greiðslukorti í stað þess að QR kóðinn sé skannaður. Unnið er að lausn.
Hvað er hægt að gera á meðan?
Viðskiptavinir með Android síma geta:
- Slökkt á NFC í símanum áður en QR kóðinn er skannaður.
- Fært tímabilskort eða miða yfir á Klapp kort eða Klapp lyklakippu.
Athugið að þetta á ekki við um iPhone síma, heldur eingöngu stöku Android tæki.
Mikilvægt að uppfæra appið
Við minnum jafnframt á að uppfæra Klapp appið reglulega til að tryggja að nýjustu uppfærslur og lagfæringar séu til staðar.
Endurgreiðslur og ábendingar
Hafi greiðsla verið tekin af korti þrátt fyrir virkt tímabilskort eða miða er hægt að óska eftir endurgreiðslu með því að senda tölvupóst á endurgreidslur@straeto.is
Við hvetjum viðskiptavini til að hafa samband við straeto@straeto.is hafi það einhverjar ábendingar sem það vill koma á framfæri eða nýta sér ábendingakerfi Strætó.