Jólaþorpið í Hafnarfirði opnaði 13. nóvember með pompi og prakt en þar geta gestir og gangandi komist í jólaskapið allar helgar fram að jólum.​

Leiðir 1, 19, 21 og 55 stoppa allar við biðstöðina Fjörður sem er í mínútu göngufjarlægð frá Jólaþorpinu.

Sömu leiðir stoppa einnig við bílastæði í nágrenni miðbæjarins og er þá hægt að taka vagn til og frá bílnum og leið 1 stoppar einnig fyrir framan Hellisgerði.

Hægt er að greiða á fjóra mismunandi vegu í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:

  • Snertilausum greiðslum
  • Klappinu appi í síma
  • Klapp korti eða lyklakippu
  • Klapp tíu

Tímatöflur fyrir leiðir sem stoppa á svæðinu