Þessa dagana er verið að taka í notkun 13 nýja rafknúna strætisvagna hjá Almenningsvögnum Kynnisferða og Hagvögnum sem sinna strætóakstri fyrir Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. Á síðasta ári gekk Strætó bs. frá samningi við félögin í kjölfar útboðs og verður allur strætófloti fyrirtækjanna orðinn rafknúinn fyrir lok árs 2029.
Þessir nýju vagnar eru hluti af þeirri vegferð. Vagnarnir sem um ræðir koma frá kínverska framleiðandanum Higer og er Icelandia umboðsaðili þeirra hér á landi. Þeir eru með 482 kWh rafhlöðu og með drægni allt að 350 km.
„ Við fögnum komu þessara vagna í strætóflotann og með tilkomu þeirra eru nú um 40 vagnar orðnir rafknúnir í akstri Strætó eða um 25%. Reynsla okkar af rekstri rafvagna er mjög góð og sjáum við fram á að þetta verði framtíðarorkugjafinn í almenningssamgöngum,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
„Með þessum vögnum erum við hjá Hagvögnum að taka okkar fyrstu skref í rafvæðingu okkar flota og erum við spenntir yfir því,“ segir Hjörvar Sæberg Högnason, framkvæmdastjóri Hagvagna.
Samhliða þessu hefur Strætó bs. sett upp hleðslustöðvar í bækistöðvum Almenningsvagna Kynnisferða og Hagvagna til að hlaða þessa bíla.
„Við höfum átt farsælt samstarf við Higer síðan 2016 og höfum á síðustu tveimur árum verið að vinna að rafvæðingu okkar flota. Það er virkilega spennandi að taka þátt í þessum orkuskiptum í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og munum við halda ótrauð áfram í að rafvæða annan rekstur félagsins. Við reiknum með að vera komin með hátt í 40 rafknúna hópferðabíla í okkar rekstur fyrir lok næsta árs, “ segir Björn Ragnarsson, forstjóri Icelandia og Almenningsvagna Kynnisferða.
