Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að Nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031.

 

Meiri þjónusta, betri tíðni, lengri þjónustutími – fleiri í Strætó

  • Hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18% í rúmlega 50%.
  • Þjónustan verður aukin, m.a. með tilliti til notkunar leiða, álags og áhrifa af framkvæmdum Borgarlínu.

Helstu breytingar

  • Aukin tíðni á annatíma:
    • Leiðir 3, 5, 6 og 12: úr 15 mín. í 10 mín.
    • Leiðir 19, 21 og 24: úr 30 mín. í 15 mín.
  • Utan annatíma:
    • Leiðir 3, 5, 12 og 15: úr 30 mín. í 15 mín.

Lengri þjónustutími á kvöldin á fjórtán leiðum: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 11, 12, 15, 18, 19, 21 og 24

  • Tímatöflulagfæringar á nokkrum leiðum (m.a. 2 og 5)
  • Leið 4 breytir akstursleið – fer um Kringlumýrarbraut vegna nýrrar forgangsakreinar og ekur því ekki um Miklubraut og Háaleitisbraut.

Ný akstursleið:

Græna línan sýnir akstursleiðina eins og hún er fyrir breytingar og biðstöðvar sem munu detta út eru merktar með x-i. Bláa línan sýnir nýju akstursleiðina og við bætist ný biðstöð: Álftamýri.

Aðrar breytingar:

  • Vagnar munu ekki bíða eftir tengingum við aðra vagna í Ártúni á annatíma vegna aukinnar tíðni.

Markmið

  • Auka notkun almenningssamgangna
  • Bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni
  • Venja fólk við tíðni framtíðarinnar
  • Draga úr umferð með auknum valkostum við einkabílinn

Af hverju núna?

  • Dregið til baka skerðingar vegna Covid
  • Undirbúningur fyrir framkvæmdir við 1. áfanga Borgarlínu
  • Til að venja fólk við aukna tíðni og hvetja til aukinnar notkunar

 


Nánari upplýsingar og uppfærðar tímatöflur verða birtar þegar nær dregur.