Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu.
Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær.
Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00.
Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð.
Einhverjar lokanir verða fyrir akandi umferð í miðborginni þegar Menningarnótt fer þar fram á laugardag.
Kort yfir virkar biðstöðvar í miðbænum mun verða birt innan tíðar.
Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tekur við um eittleytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.
Leið 1
- mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
- mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leið 6
- mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15
- munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
- munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)
Við biðjum viðskiptavini að kynna sér vel áætlun Strætó í leiðavísinum og finna ferð, áður en haldið er af stað á Menningarnótt, þar sem tímasetningar ferða geta verið aðrar en venjulega vegna aukinnar tíðni og lokana gatna í borginni. Hægt er að skoða tíðnina í tímatöflum þessara leiða undir 22. ágúst.
Vagnar gætu þurft að aka óhefðbundna leið vegna lokana og geta því akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða. Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.
Hægt er að greiða í Strætó á höfuðborgarsvæðinu, með:
- Snertilausri greiðslu
- Klappinu appi í síma
- Áfyllanlegu Klapp korti eða lyklakippu
- Klapp tíu
Nánari upplýsingar á Klappid.is
Leiðakerfi rofið kl. 21:30
Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.
Það kostar ekkert í þessar ferðir.
Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:
Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 23:20.
| 1 | Kl. 21:35 frá Skúlagötu | Kl. 21:34 frá Skarðshlíð. |
| 2 | Kl. 21:24 frá HÍ | Kl. 21:16 frá Mjódd |
| 3 | Kl. 21:25 frá Granda | Kl. 21:21 frá Mjódd |
| 4 | Kl. 21:19 frá Skúlagötu | Kl. 21:21 frá Mjódd |
| 5 | Kl. 21:23 frá HR | Kl. 21:33 frá Norðlingaholti |
| 6 | Kl. 21:33 frá HÍ | Kl. 21:33 frá Egilshöll |
| 7 | Kl. 21:34 frá Tungubökkum | Kl. 21:35 frá Egilshöll |
| 11 | Kl. 21:20 frá Mjódd | Kl. 21:22 frá Eiðistorgi |
| 12 | Kl. 21:20 frá Skerjafirði | Kl. 21:37 frá Ártúni |
| 13 | Kl. 21:10 frá Sléttuvegi | Kl. 21:38 frá Öldugranda |
| 14 | Kl. 21:29 frá Granda | Kl. 21:30 frá Verzló |
| 15 | Kl. 21:15 frá Reykjavegi | Kl. 21:30 frá Flyðrugranda |
| 18 | Kl. 21:36 frá Spöng | Kl. 21:43 frá Skúlagötu |
| 19 | Kl. 21:18 frá Kaplakrika | Kl. 21:26 frá Ásvallalaug |
| 21 | Kl. 21:11 frá Álfholti | Kl. 21:22 frá Mjódd |
| 24 | Kl. 21:19 frá Spöng | Kl. 21:03 frá Ásgarði |
| 35 | Kl. 21:07 frá Hamraborg | |
| 36 | Kl. 20:07 frá Hamraborg |
Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29.
Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd
Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa.
Almennt fargjald gildir.
Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar en einungis ganga í eina átt. Aðeins verður hægt að taka vagninn frá miðbænum og út í hverfi.
Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50.
Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð.
Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti.
