Fréttir
18. ágúst 2026

Þjónusta Strætó á Menningarnótt 2026

Frítt verður í skutluþjónustu og þegar miðborgin verður tæmd að lokinni flugeldasýningu.

Aukin tíðni verður á ferðum Strætó yfir daginn og gildir almennt fargjald í þær.


Skrollaðu til hægri til að sjá fleiri flipa með upplýsingum.

Vegna götulokana verður BSÍ endastöð niður í bæ fyrir flestar leiðir um daginn – til um 15:00.

Eftir um kl. 15:00 tekur Skúlagata við sem endastöð.

 

Kort yfir virkar biðstöðvar í miðbænum á Menningarnótt
Kort yfir virkar biðstöðvar í miðbænum á Menningarnótt

Vegna götulokana munu vagnar þurfa að aka hjáleiðir og geta akstursleiðir breyst yfir daginn. Tilkynnt verður um hjáleiðir undir Stöðu ferða.

Hægt er að sjá sjá tíðni ferða í leiðavísinum og í tímatöflum.

Hægt er að fylgjast með för vagnanna í Klappinu eða á straeto.is til að sjá hvar vagnarnir eru.


Aukin tíðni yfir daginn

Borga þarf almennt fargjald í strætó og næturstrætó sem tek­ur við um eitt­leytið en handhafar mánaðar- og árskorta geta notað kortin sín um borð í næturstrætó.

Leið 1

  • mun aka á 15 mín. tíðni frá ca. kl. 7 – 10
  • mun aka á 10 mín. tíðni frá ca. kl. 10 – 18
  • mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)

Leið 6

  • mun aka á 15 mín. tíðni ca. frá kl. 7 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)

Leiðir 2, 3, 4, 5, 11, 12, 13, 14 og 15

  • munu aka á 15 mín tíðni frá kl. 7/8 – 18
  • munu aka á 30 mín tíðni frá kl. 18 – 21:30 (þar til tæming frá miðborg hefst)

Leiðakerfi rofið kl. 21:30

Kl. 21:30 verður leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu rofið og öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut.

Það kostar ekkert í þessar ferðir.

Þetta eru síðustu ferðir Strætó áður en leiðakerfið verður rofið fyrir flugeldasýningu:

Leiðakerfið verður svo aftur sett í gang í breyttri mynd kl. 23:20.

Brottfaratímar á síðustu ferð frá
1Kl. 21:35 frá SkúlagötuKl. 21:34 frá Skarðshlíð.
2Kl. 21:24 frá HÍKl. 21:16 frá Mjódd
3Kl. 21:25 frá GrandaKl. 21:21 frá Mjódd
4Kl. 21:19 frá SkúlagötuKl. 21:21 frá Mjódd
5Kl. 21:23 frá HRKl. 21:33 frá Norðlingaholti
6Kl. 21:33 frá HÍKl. 21:33 frá Egilshöll
7Kl. 21:34 frá TungubökkumKl. 21:35 frá Egilshöll
11Kl. 21:20 frá MjóddKl. 21:22 frá Eiðistorgi
12Kl. 21:20 frá SkerjafirðiKl. 21:37 frá Ártúni
13Kl. 21:10 frá SléttuvegiKl. 21:38 frá Öldugranda
14Kl. 21:29 frá GrandaKl. 21:30 frá Verzló
15Kl. 21:15 frá ReykjavegiKl. 21:30 frá Flyðrugranda
18Kl. 21:36 frá SpöngKl. 21:43 frá Skúlagötu
19Kl. 21:18 frá KaplakrikaKl. 21:26 frá Ásvallalaug
21Kl. 21:11 frá ÁlfholtiKl. 21:22 frá Mjódd
24Kl. 21:19 frá SpöngKl. 21:03 frá Ásgarði
35Kl. 21:07 frá Hamraborg
36Kl. 20:07 frá Hamraborg

Undantekning: Þjónusta verður ekki rofin á leiðum: 22 og 23 og leiðum í pöntunarþjónustu 25, 26, 27 og 29.


Leiðakerfið sett aftur í gang í breyttri mynd

Þar sem dagskrá lýkur fyrr en hefur verið síðustu ár þá verður leiðakerfið sett aftur í gang í mjög breyttri mynd til að koma til móts við þá farþega sem þurfa að ferðast á milli hverfa.

Almennt fargjald gildir.

Vagnar munu ganga frá Skúlagötu frá kl. 23:20 og fara þá sömu leiðir og tæmingarleiðirnar en einungis ganga í eina átt. Aðeins verður hægt að taka vagninn frá miðbænum og út í hverfi.

Vagnarnir munu ganga á 30 mín fresti. Síðasta ferð úr bænum er kl. 00:50.

Leið 101

Hægt er að leita að þessum ferðum í Skipuleggja ferð.

Vinsamlegast fylgist með staðsetningu vagnanna á rauntímakorti.