Þjóðminjasafn Íslands og Strætó hafa tekið höndum saman til að fagna þeim merka áfanga að íslensk sundmenning er komin á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Sundmenningin, sem lifandi hefð, er þar með viðurkennd á alþjóðavettvangi sem einkennandi þáttur í menningu íslensks samfélags.
Sundvagninn er því kominn til sögunnar og mun aka leið 1 næstu vikurnar. Hann verður til sýnis við Þjóðminjasafnið við upphaf Safnanætur á sundfögnuði í safninu kl. 17. Þar munu Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður, Logi Einarsson menningarráðherra og Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og velunnari íslenskrar sundmenningar, flytja ávörp. Boðið verður upp á örsýningar sem tengjast sundmenningu þjóðarinnar og sundlaugabíó í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Einnig koma fram Linus Orri Gunnarsson Cederborg, fulltrúi gamalla hefða í íslenskum kveðskap og Erpur Eyvindarson, fulltrúi nýrra blæbrigða, en þeir munu hræra í tímalausa rímnasúpu gestum til skemmtunar.


