Fréttir
18. ágúst 2026

Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar

Strætó hefur aukið þjónustu sína á mest notuðu leið höfuðborgarsvæðisins. Aukningunni er ætlað að koma til móts við verulega fjölgun farþega sem árlega fylgir haustinu þegar skólar byrja og flestir hafa snúið til vinnu eftir sumarfrí.

Alls verður þremur aukavögnum bætt við á leið 1 á morgnana á virkum dögum og verða þá alls fimm aukavagnar á leiðinni þar sem tveir hafa þegar verið í akstri. Leiðin er sú mest notaða á höfuðborgarsvæðinu allt árið um kring en reynslan sýnir að farþegum fjölgar verulega á leiðinni á haustin, sem jafnframt þýðir að vagnar eru oft þétt setnir og jafnvel fullir.

Með fleiri vögnum minnka verulega líkur á að vagnar yfirfyllist en tíðni ferða verður áfram sú sama, á tíu mínútna fresti á annatíma.