Strætó bs. hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er fjórða árið í röð sem Strætó bs. fær þessa viðurkenningu.
Hjá Strætó bs. er lögð áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika enda er það mikilvægur þáttur í að skapa góðan vinnustað. Fjölbreytt stjórnendateymi stuðla að betri ákvarðanatöku og árangri, bæði fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið allt.
Sigurborg Þórarinsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Strætó bs., tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.
