Fréttir
29. júlí 2026

Sólmyrkvi 12. ágúst – upplýsingar um þjónustu Strætó

Strætó ekur samkvæmt áætlun 12. ágúst en vegna mikillar umferðar í tengslum við sólmyrkvann má búast við lengri ferðatíma, töfum og rofnum tengingum á sumum leiðum. Fylgist með stöðu ferða áður en lagt er af stað.


Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á nokkrum stöðum á Íslandi. Búist er við því að margir leggi leið sína á almyrkvaslóðina til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð og því má gera ráð fyrir aukinni umferð víða um land.

Þjónusta Strætó verður samkvæmt áætlun, en aukin umferð getur haft áhrif á ferðatíma. Farþegar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um stöðu ferða á sjálfum deginum og gera ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega.

Höfuðborgarsvæðið:

Þjónusta Strætó verður skv. áætlun. Nokkrar leiðir munu þó aka hjáleiðir vegna götulokana og búast má við lengri ferðatíma, sérstaklega á leiðum sem aka um vesturhluta Reykjavíkur og á Seltjarnarnes.

  • Leið 11 kemst ekki út á Seltjarnarnes vegna götulokana og mun enda ferð sína í HÍ.
  • Leiðir 12 og 15 geta ekki ekið Suðurgötu í Reykjavík vegna götulokunar.
    • Leið 12 mun því enda ferð sína í HÍ.
    • Leið 15 mun aka Hringbraut beint frá stoppistöðinni Gömlu Hringbraut að næstu virku stoppistöð sem verður Ægisborg.
  • Leið 23 mun aka öfugan hring á Álftanesi vegna einstefnu.
  • Leið 19 mun hugsanlega þurfa að aka hjáleið í Hafnarfirði vegna tónleika á Vífilstaðatúni.

Upplýsingar um hjáleiðir verða birtar undir stöðu ferða.

Landsbyggðin:

Þjónusta verður samkvæmt áætlun, að undanskilinni leið 59 þar sem miðvikudagsferð verður færð yfir á þriðjudaginn 11. ágúst.

Aukin umferð getur valdið töfum á leiðunum og haft áhrif á tengingar milli leiða. Upplýsingar um seinkanir og stöðu ferða verða uppfærðar eins og kostur er á sjálfum deginum undir stöðu ferða.

Vakin er athygli á að tenging landsbyggðarvagna við ferjuáætlun Herjólfs og Baldurs getur rofnað.

  • Fyrir Herjólf eru farþegar beðnir um að fylgjast með upplýsingum undir stöðu ferða.
  • Fyrir Baldur eru farþegar beðnir um að hafa samband við Westfjords Adventures í s. 456-5006.

 

Helst má gera ráð fyrir áhrifum á eftirfarandi leiðir:

Suðurnes:

  • Leið 55
  • Leið 87
  • Leið 89

Snæfellsnes

  • Leið 58
  • Leið 82

Vesturland og Norðurland

  • Leið 50
  • Leið 57 – Biðtími farþega í Staðarskála getur lengst eða styst eftir því hvernig ferðir ganga, þar sem vagnarnir mætast þar
  • Leið 59 – miðvikudagsferð færist yfir á þriðjudaginn 11. ágúst

Vestfirðir

  • Leið 62

Suðurland

  • Leið 51
  • Leið 53

Við hvetjum farþega til að fylgjast með upplýsingum á vef Strætó undir stöðu ferða og samfélagsmiðlum á ferðadeginum.

Börn ferðist ekki ein út á land

Samkvæmt tilmælum Vegagerðarinnar er mælst til þess að börn yngri en 15 ára ferðist ekki ein með landsbyggðarvögnum þennan dag.

Búast má við mikilli umferð og töfum sem geta haft áhrif á ferðatíma og tengingar. Einnig má gera ráð fyrir álagi á fjarskiptakerfi.

Verum vel undirbúin

Verið vel undirbúin fyrir ferðalagið og kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað. Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma.

Stjórnvöld hvetja þá sem búa á almyrkvaslóðinni til að njóta almyrkvans í sínu nærumhverfi og draga þannig úr álagi á vegakerfi og aðra innviði. Þeir sem ætla að ferðast ættu að skipuleggja ferðalagið vel, vera tímanlega og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.