Fréttir
12. júní 2024

Sleppisvæði fyrir rafskútur við biðstöðvar í Kópavogi

Kópavogsbær, Strætó og rafskútuleigurnar Hopp og Zolo hafa tekið höndum saman til að til að hvetja fólk til að nota umhverfisvæna ferðamáta og um leið bæta lagningu rafskúta í bænum.

Frá og með deginum í dag, miðvikudeginum 12.júní, er veittur afsláttur af leigu rafskúta ef þeim er lagt á skilgreindum svæðum við biðstöðvar Strætó með það að leiðarljósi að hvetja notendur til að leggja rafskútunum þar sem þær eru ekki fyrir gangandi og akandi. Sleppisvæðin verða sýnileg inn í appi rafskútuleiganna.

Kópavogsbær er fyrsta sveitarfélagið sem fer þessa leið og er markmiðið að fjölga slíkum stæðum í bænum þannig að þau verði einnig við sundlaugar, íþróttamannvirki og önnur vinsæl svæði sem hægt er að greina út frá upplýsingum frá rafskútuleigum.

„Virkilega gaman að Kópavogsbær sé fyrst sveitarfélaga á Íslandi að stíga þessi skref. Með þessu hvetjum við fólk til að tengja saman tvo umhverfisvæna fararmáta, Strætó og rafskútur og stuðlum í leiðinni að því að rafskútur séu ekki á víð og dreif um bæinn,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri.

Strætó og rafskútuleigurnar eru þegar í góðu samstarfi þar sem staðsetning rafskúta á rauntímakorti er sýnileg inn á vef Strætó og í Klappinu. Hægt er að smella á viðkomandi rafskútu á kortinu og þá sést hvaða fyrirtæki hjólið tilheyrir og hver hleðslan er. Sé smellt á hlekkinn er farið inn á rafskútuna í viðkomandi appi og þannig hægt að taka hana frá eða á leigu strax.

Á myndinni eru frá vinstri: Adam Karl Helgason, rekstrarstjóri Zolo. Sigurjón Rúnar Vikarsson, rekstrarstjóri Hopp, Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp, Leó Snær Pétursson, umhverfis- og samgöngunefnd og dóttir hans Hafdís Magnea, Guðjón Ingi Guðmundsson, umhverfis- og samgöngunefnd, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, Bergur Þorri Benjamínsson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar og Jóhannes Svavar Rúnarsson, Strætó bs.