Sjálfbærniskýrsla Strætó fyrir árið 2025 er komin út og var hún kynnt á ársfundi félagsins sem haldinn var fimmtudaginn 26. mars. Í skýrslunni má finna fjölbreyttar upplýsingar um starfsemi Strætó, meðal annars um vagnastöðu, þjónustu í leiðakerfinu, tækninýjungar og losun gróðurhúsalofttegunda. Við gerð skýrslunnar var stuðst við alþjóðlega staðalinn GRI (Global Reporting Initiative).
Á ársfundinum fór Alexandra Briem, stjórnarformaður Strætó, yfir skýrslu stjórnar og Elísa Kristmannsdóttir, deildarstjóri fjármála, kynnti ársreikninga félagsins. Að lokum fór Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, yfir helstu áherslur félagsins í sjálfbærni – og umhverfismálum.
Sjálfbærniskýrsla Strætó 2025
sjalfbaerniskyrsla2025.straeto.is


