Í dag opnum við prófunarútgáfu (e. beta) af nýjum vef Strætó á beta.straeto.is. Vefurinn er endurhannaður frá grunni og leysir núverandi vef af hólmi á næstunni. Markmiðið er að auðvelda farþegum að skipuleggja ferðir og veita betri og skýrari upplýsingar, jafnt í síma sem tölvu. Í kjölfar útgáfunnar verður ferðaskipuleggjarinn í Klapp-appinu einnig uppfærður.


Vefurinn er hannaður og forritaður af Studio Atla & Samma í nánu samstarfi við starfsfólk ASHB. Hann er enn í vinnslu og við tökum fagnandi á móti ábendingum og hugmyndum í gegnum formið á nýja vefnum.

Helstu nýjungar eru meðal annars:

  • Endurbættur ferðaskipuleggjari
    Ferðaskipuleggjarinn hefur verið uppfærður og skilar nú betri tillögum. Leitin er líka orðin betri, svo auðveldara er að finna heimilisföng, staði og stoppistöðvar. Ferðin er sýnd skref fyrir skref með gönguleiðum, fargjaldi og veðri. Einnig er hægt að deila henni með öðrum.
  • Bætt kort með leiðarnetinu öllu
    Kortið sýnir nú allt leiðanet Strætó á landinu og er bæði nákvæmara og skýrara en áður. Með leiðunum á kortinu er mun auðveldara að fylgjast með vögnum í rauntíma og rata um leiðanetið. Einnig er hægt að smella hvar sem er á kortinu og hefja leit þaðan, auk þess sem þar má sjá veður og rafskútur.
Nú má sjá leiðarkerfið í heild sinni fyrir allt landið.
Nú má sjá leiðarkerfið í heild sinni fyrir allt landið.
  • Betri rauntímaupplýsingar
    Upplýsingar um staðsetningu vagna berast nú hraðar og eru nákvæmari en áður.
    Í nýja viðmótinu er hægt að velja vagn og fylgja honum eftir, sjá hvar hann er staddur og hvaða leið hann ekur.
Dæmi um staðsetningu og akstursleið valins vagns á leið 14.
Dæmi um staðsetningu og akstursleið valins vagns á leið 14.
  • Auðveldara að finna stoppistöðvar
    Hver stoppistöð hefur nú sína eigin síðu með næstu brottförum í rauntíma, og hægt er að vista hana í „Mín stopp“ til að finna hana fljótt aftur. Leyfir þú staðsetningu sýnir vefurinn líka stoppistöðvar í nágrenninu, svo fljótlegt er að finna næsta stopp og sjá hvenær næsti vagn kemur.
  • Hjáleiðir og truflanir
    Hjáleiðir og tímabundnar stoppistöðvar eru nú sýndar á kortum og í ferðaupplýsingum. Tilkynningar um breytingar á þjónustu birtast á forsíðu.
  • Nýtt spjallmenni
    Sérþjálfað spjallmenni er opið allan sólarhringinn á íslensku og ensku. Það aðstoðar meðal annars við ferðaskipulag og óskilamuni og svarar öðrum spurningum um þjónustuna. Á opnunartíma er hægt að fá samband við starfsfólk þjónustuvers.
  • Viðmót og aðgengi
    Vefurinn er hannaður með ólík tæki í huga og hægt er að velja dökka stillingu. Aðgengi hefur verið haft að leiðarljósi frá upphafi. Hann er prófaður með skjálesurum og með hliðsjón af WCAG 2.2 AA-staðlinum. Strætó var í góðu samráði við Blindrafélagið og notendaprófanir voru í höndum Sjá.

Á bak við tjöldin fær starfsfólk einnig ný kerfi til að halda utan um tímatöflur, leiðanet, óskilamuni og þjónustuver. Þau eiga að skila sér í réttari og fljótari upplýsingum til farþega.