Fréttir
12. mars 2026

Ný uppfærsla í Klappinu fyrir Android notendur

Ný uppfærsla Í Klappinu fór í loftið í lok síðustu viku og á hún að koma í veg fyrir að notendur Android síma lendi í því að veskið taki yfir QR kóðann í appinu og greiði þannig snertilaust en einstaka notendur höfðu lent í því.

Uppfærslan á að virka þannig að þegar appið er opið slökknar á NFC tengingu símans og því ekki hægt að greiða snertilaust.

Við biðjum því viðskiptavini um að uppfæra appið en mikilvægt er að uppfæra appið reglulega til að tryggja að nýjustu uppfærslur og lagfæringar sé ávallt til staðar.

Ef einhverjar spurningar vakna geta viðskiptavinir haft samband við straeto@straeto.is