Fréttir
27. ágúst 2026

Ný áskriftarkort landsbyggðarstrætó komin í sölu

Ný áskriftarkort fyrir landsbyggðarstrætó, Byggðakort, og nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi eru komin í sölu. Hægt er að versla kortin í vefverslun Strætó.

Byggðakort – ný áskriftarkort

Byggðakortin eru ný áskriftarkort fyrir landsbyggðastrætó. Þau gilda á ákveðnum akstursleiðum milli þéttbýliskjarna innan hvers landshluta, án viðkomu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða hagkvæmari valkost fyrir þau sem ferðast reglulega á þessum leiðum. Þær akstursleiðir sem urðu fyrir valinu fyrir Byggðakortin eru þær sem mest ákall hefur verið um, en komi upp óskir um fleiri akstursleiðir mun Vegagerðin taka það til skoðunar.

Eftirfarandi akstursleiðir eru í boði fyrir Byggðakortin:

Suðurland

Selfoss – Hveragerði

Selfoss – Þorlákshöfn

Selfoss – Hella – Hvolsvöllur

Suðurnes

Reykjanesbær – Sandgerði – Garður

Reykjanesbær – Vogar

Vesturland

Borgarnes – Akranes

Borgarnes – Dalir

Sömu aldursflokkar og afsláttarkjör gilda fyrir Byggðakort og Landshlutakort. Landshlutakortin, sem hafa verið í boði frá árinu 2022, verða áfram í sölu á óbreyttu verði og með óbreyttum skilmálum.

Nemakort – nýtt fyrirkomulag

Nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi er einnig komið í sölu. Nemendur geta nú valið þau kort sem henta þeim best, annaðhvort Landshlutakort eða Byggðakort, og fá 50% afslátt af þeim kortum. Nú er hægt að velja á milli 1 mánaða, 3 mánaða og 12 mánaða korta.

Áður var aðeins hægt að kaupa kort fyrir ákveðinn landshluta sem gilti í 6 mánuði frá kaupum. Nýja fyrirkomulagið veitir því nemendum meiri sveigjanleika og gerir þeim kleift að velja áskrift út frá þeim leiðum sem þeir nota mest.