Þriðjudaginn 23. júní flytur móttaka Strætó í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. 

Þar verður áfram hægt að nálgast sömu þjónustu og áður, meðal annars að fá aðstoð vegna farmiða og vitja óskilamuna. 

Opnunartími móttökunnar er: 

  • Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00–16:00 
  • Föstudaga kl. 9:00–14:00 

Margar strætóleiðir stoppa nálægt móttökunni og eru biðstöðvar í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.  

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í nýju húsnæði í miðbæ Reykjavíkur.