Strætó hefur lengt opnunartíma móttöku sinnar til að bæta þjónustu og auka aðgengi viðskiptavina. Móttakan er nú opin frá kl. 8:00 til 17:00 alla virka daga en móttakan er til húsa í Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. Opnunartími þjónustuvers helst óbreyttur.

Áður var móttakan opin frá kl. 9:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 9:00 til 14:00 á föstudögum.

Nýr opnunartími móttöku:

  • Alla virka daga kl. 8:00–17:00

Þjónustuver Strætó í síma 540 2700

  • Alla virka daga kl. 7:00–17:00
  • Laugardaga og sunnudaga kl. 10:00–14:00