Í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands hefur sérstakur jólasveinavagn hafið akstur um götur höfuðborgarsvæðisins.
Í tilefni af fyrstu ferð jólasveinavagnsins var börnum frá leikskólanum Austurborg boðið í jólaferð í Þjóðminjasafnið. Þar fengu þau jólaleiðsögn um safnið og hittu meðal annars Stekkjastaur og systur hans, jólaskelluna Leppatusku, sem höfðu gert sér snemmbúna ferð til byggða.
Að heimsókninni lokinni héldu Stekkjastaur og Leppatuska áfram för með jólasveinavagninum að Barnaspítala Hringsins þar sem þau skemmtu börnum.
Jólasveinar í Þjóðminjasafninu
Jólasveinarnir hafa heimsótt Þjóðminjasafnið og skemmt börnum þar frá árinu 1988. Í ár verður engin undantekning en dagana 12.–24. desember mæta sveinarnir í safnið kl. 11 þann dag sem þeir koma til byggða. Þar syngja þeir jólalög með gestum og um helgar bætast jólaskellurnar í hópinn.
Allir eru velkomnir og er tilvalið að nýta tækifærið og skella sér í safnið með Strætó en jólavagninn mun aka leið 1 yfir aðventuna og er sérstaklega merktur á kortinu í Klapp appinu.


