Fréttir
28. maí 2026

Hvalfjarðargöng opnuð - leið 50 aftur á áætlun

Hvalfjarðargöng verða opnuð að nýju þann 29. maí kl. 6:00 að loknum framkvæmdum við endurnýjun lýsingar í göngunum. 

Við opnun ganganna fellur niður sú tímabundna skerðing sem verið hefur á leið 50 og mun leiðin því aftur aka samkvæmt hefðbundinni áætlun. Síðustu ferðir dagsins falla því ekki lengur niður. 

Leið 59 mun hins vegar halda óbreyttri tímabundinni áætlun fram að sumaráætlun leiðarinnar sem tekur gildi 5. júní.