Fréttir
12. nóv. 2021

Hvað verður um gamla greiðslukerfið 16. nóvember?

KLAPP, nýtt greiðslukerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður formlega innleitt 16. nóvember. En samhliða nýju greiðslukerfi þá verður gamla greiðslukerfið að einhverju leyti til staðar í eitt ár.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um það hvað gerist fyrir gamla greiðslukerfið frá og með 16. nóvember 2021.


Strætó appið

Þann 16. nóvember verður ekki lengur hægt að kaupa nýja miða eða mánaðarkort í Strætó appinu. Viðskiptavinum verður í staðinn vísað í KLAPP appið.

Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort í Strætó appinu skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið.

Viðskiptavinir sem eru með virka áskrift munu klára þriggja mánaða hringinn sinn. Eftir þriðja „fría mánuðinn“ verður ekki lengur hægt að kaupa nýja áskrift.

Þeir sem eiga ónotaða miða í Strætó appinu þann 16. nóvember 2021 hafa frest í eitt ár til að nota þá.

Til að byrja með verður núverandi Strætó app áfram notað til þess að leita að ferðum eða fylgjast með vögnum í rauntíma. Það verður einnig áfram hægt að kaupa landsbyggðarmiða í Strætó appinu.

 

Pappírs farmiðar

Í stað pappírs farmiðanna kemur ný vara sem heitir KLAPP tía.

KLAPP tía er pappaspjald með 10 miðum fyrir annaðhvort fullorðna, ungmenni eða aldraða. Pappaspjaldið er með kóða sem er skannaður um borð í vagninum. Á skannanum kemur fram hve margar ferðir eru eftir á spjaldinu. Þú getur keypt KLAPP tíu hjá öllum söluaðilum Strætó á höfuðborgarsvæðinu eða inn á straeto.is.

Það verður áfram hægt að greiða með pappírs farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni þangað til 1. mars 2022.

Viðskiptavinir sem vilja skipta gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu hafa frest til 16. mars 2022 til að gera það.

 

Prentuð Strætó kort

Viðskiptavinir sem eru með virk tímabilskort skulu halda áfram að nota þau og leyfa gildistíma þeirra að renna út áður en skipt er yfir í Klapp greiðslukerfið.

 

Reiðufé

Áfram verður hægt að greiða með reiðufé þar til annað verður tilkynnt. Vagnstjórar geta ekki gefið til baka.

Öryrkjar munu ekki geta greitt afsláttarfargjald með reiðufé. Þeir geta hins vegar fengið 70% afslátt í Klapp greiðslukerfinu.