Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 16. júlí næstkomandi. Verð á stökum fargjöldum helst óbreytt en tímabilskort hækka því sem nemur 3,45%. Sama hækkun á við tímabilskort versluð með afsláttarkjörum. 

30 daga kort fullorðinna hækkar því úr 11.600 kr. í 12.000 kr. og árskort fullorðinna úr 116.000 kr. í 120.000 kr. 

Stakt fargjald verður áfram 690 kr. og verð á Klapp plastkortum og lyklakippum helst sömuleiðis óbreytt eða 1.000 kr.  

Ákvörðun um gjaldskrárbreytingu er í samræmi við gjaldskrárstefnu um að verð hækki í takt við áætlaða hækkun neysluverðsvísitölu. Gjaldskrá Strætó ber að endurskoða tvisvar á ári en síðast var gjaldskráin hækkuð 6. janúar 2026. 

Gjaldskrárbreytingarnar ná einungis til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu. 

Ný gjaldskrá tekur gildi fimmtudaginn 16. júlí 2026. 

Gjaldskrá Strætó frá og með 16. júlí 2026

Stök fargjöld
Verð
Snertilausar greiðslur690 kr.
Fullorðnir690 kr.
Ungmenni, 12- 17 ára345 kr.
Aldraðir, 67 ára og eldri345 kr.
Öryrkjar207 kr.*
Börn, 11 ára og yngri0 kr.
Næturstrætó - eitt fargjald690 kr.

*Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu.

Tímabilskort
30 daga12 mánaða
Fullorðnir12.000 kr.120.000 kr.
Ungmenni, 12- 17 ára6.000 kr.60.000 kr.
Aldraðir, 67 ára og eldri6.000 kr.60.000 kr.
Nemar, 18 ára og eldri*6.000 kr.60.000 kr.
Öryrkjar*3.600 kr. 36.000 kr.

*Afsláttur er virkjaður í Klapp greiðslukerfinu.

Áfyllanleg Klapp kort og lyklakippur
Klapp kort1.000 kr.
Klapp lyklakippa1.000 kr.