Uppsetning NaviLens-kóða á biðstöðvum Strætó er hafin og eru fyrstu leiðirnar, 13 og 14, nú þegar aðgengilegar blindum og sjónskertum.

Með notkun NaviLens kóða geta blindir og sjónskertir sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó, án utanaðkomandi aðstoðar en lausnin gerir notendum kleift að nálgast sjálfstætt rauntímaupplýsingar um ferðir Strætó í gegnum smáforrit sem les upplýsingar upphátt. Hún nýtist einnig öðrum farþegum, meðal annars ferðamönnum og fólki með annað móðurmál.

Verkefnið er samstarfsverkefni Strætó og Blindrafélagsins og markar mikilvægt framfaraskref í aðgengi að almenningssamgöngum. Strætó leiðir verkefnið og eru kóðarnir á ábyrgð og í eigu Strætó en Blindrafélagið fékk styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðherra og innviðaráðherra um innleiðingu á kóðanna á sínum tíma.

Reykjavíkurborg hefur stutt verkefnið frá upphafi, bæði í skipulagi og framkvæmd, og starfsfólk borgarinnar hefur séð um uppsetningu kóða á skýli og staura í borginni. Síminn/Billboard hefur jafnframt veitt ómetanlega aðstoð með því að setja upp kóða á öll skýli á þeirra vegum.

Á næstu misserum verður uppsetning kóða hafin á fleiri leiðum og stöðvum, bæði í Reykjavík og síðar í öðrum sveitarfélögum.

Fyrir hverja er lausnin?

  • Blindir og sjónskertir geta sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma, án þess að þurfa að treysta á aðstoð annarra.
  • Sjáandi notendur geta nýtt appið NaviLens GO til að fá sömu rauntímaupplýsingar á einfaldan hátt.
  • Ferðamenn og fólk sem ekki talar íslensku fá upplýsingar sjálfkrafa á tungumáli tækisins. Appið styður yfir 33 tungumál.
  • Fólk með lestrarerfiðleika, eins og lesblindu, getur einnig nýtt sér kóðana þar sem upplýsingarnar eru lesnar upphátt í appinu.