Þann 1. október tekur gildi breytt áætlun á leiðum 72, 73 og 94.

Leið 72

Tímataflan hefur verið lagfærð og tímasetningar á stoppistöðum breytast á leiðinni. Upphafstímar frá Selfossi haldast óbreyttir.

Leið 73

  • Ferð kl. 16:02 verður aðeins farin mánudaga til fimmtudaga en ekki á föstudögum.
  • Á föstudögum færist ferð frá N1 Selfossi úr kl. 11:49 í kl. 13:50.
  • Á sunnudögum seinkar ferð um 3 mínútur til að samræma hana betur við aðrar leiðir. Brottför frá N1 Selfossi verður kl. 16:26.
  • Ferð á laugardögum fellur niður.

Leið 94

Áætlun leiðarinnar breytist í samræmi við breytta flugáætlun. Jafnframt mun vagninn einungis aka á milli Hafnar og Djúpavogs og hætta að aka til Breiðdalsvíkur.