Fréttir
25. feb. 2026

Breytingar á tímatöflum á landsbyggðinni 1. mars 2026

Lítilsháttar breytingar verða á tímatöflum leiða 52 og 53 á Suðurlandi og 50 og 57 á Vestur- og Norðurlandi.


Breytingar taka gildi sunnudaginn 1. mars. Um er að ræða minni háttar breytingar á brottfarartímum en fjöldi ferða helst óbreyttur.

Leiðir 52 og 53

  • Tímatöflur á leiðum 52 og 53 (Suðurland) munu breytast á meðan 51 verður óbreytt.
    • Engin breyting verður innan höfuðborgarsvæðisins á leið 52.

Nýjar tímatöflur verða birtar innan skamms.

Leiðir 50 og 57

  • Tímatöflur á leiðum 50 og 57 (Vestur- og Norðurland) munu breytast.
    • Breytingar verða á akstri innan höfuðborgarsvæðisins þar sem aksturstími verður styttur ásamt breytingum á landsbyggðinni.

Nýjar tímatöflur verða birtar innan skamms.