Fréttir
16. júní 2026

Breytingar á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu 

Markmiðið með breytingunum er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar með stöðugri fjármögnun og umbótum  


Frá og með 1. júlí 2026 taka í gildi breytingar á rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. (ASHB) taka við ábyrgð á skipulagi og rekstri þeirra.  

Markmið breytinganna er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar og er liður í áframhaldandi uppbyggingu þeirra samkvæmt Samgöngusáttmálanum.  

Með nýju fyrirkomulagi verður skipulag og þjónustustýring aðskilin frá daglegum rekstri vagna auk þess sem ríkið kemur inn með fjármögnun. Með aðkomu ríkisins fæst aukið fjármagn til að efla þjónustuna og styðja við greiðari, hagkvæmari og vistvænni samgöngur.  

Fyrir viðskiptavini verða engar breytingar á daglegri notkun þjónustunnar. Allir farmiðar halda gildi sínu, greiðslulausnir verða óbreyttar og áfram verður hægt að nálgast upplýsingar um ferðir og þjónustu með sama hætti og áður.  

Móttakan mun flytja í nýtt húsnæði að Hafnarstræti 7 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um flutninginn og afgreiðslutíma verða birtar innan skamms.  

Vegna breytinganna mun ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem tengjast greiðsluþjónustu viðskiptavina færast frá Strætó bs. til ASHB. Tilkynning um það verður birt áður en breytingarnar taka gildi. Flutningurinn hefur ekki áhrif á réttindi viðskiptavina eða þá þjónustu sem þeir njóta.  

Viðskiptavinir þurfa ekki að grípa til neinna aðgerða vegna breytinganna.