Breytingar munu verða á ferðum á leið 53 vegna lokunar á hringvegi við Hellu þann 14. apríl.
- Ferð kl. 19:29 frá Selfossi ekur aðeins að Hellu.
- Ferð kl. 20:13 frá Hvolsvelli ekur ekki frá Hvolsvelli heldur hefst á Hellu kl. 20:25.
- Ferð kl. 20:40 frá Landeyjahöfn ekur ekki frá Landeyjahöfn heldur hefst á Hellu kl. 21:15.
Herjólfur mun þetta kvöld sigla til Þorlákshafnar og mun aukavagn merktur Herjólfi aka á milli Mjóddar og Þorlákshafnar.
Athugið að mögulega gæti lokunin einnig haft áhrif á fyrstu ferð leiðar 53 þann 15. apríl, upplýsingar verða settar hér inn um leið og þær liggja fyrir.