Þriðjudaginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu í tilefni bíllausa dagsins.
Með bíllausa deginum ljúkum við Evrópskri samgönguviku sem hófst þann 16. september síðastliðinn. Þema vikunnar í ár var Samgöngur fyrir öll – þvert á kynslóðir.
Bíllausi dagurinn er frábært tækifæri til að leggja bílnum til hliðar og prófa aðra vistvænni ferðamáta. Hvort sem það er að hoppa um borð í Strætó gjaldfrjálst, hjóla, ganga eða jafnvel skokka í vinnu og skóla.
Við hvetjum fólk til að taka þátt og nýta sér fjölbreytta ferðamáta sem eru bæði góðir fyrir okkur og umhverfið.