Fréttir
30. sept. 2026

Bætt aðkoma og aðstaða fyrir landsbyggðarstrætó á Keflavíkurflugvelli

Mikilvægar umbætur hafa verið gerðar á aðkomu og aðstöðu fyrir landsbyggðarstrætó sem ekur til og frá Keflavíkurflugvelli til að bæta aðgengi flugfarþega og starfsfólks að flugstöðinni.

Nýjar stoppistöðvar hafa verið settar upp á tveimur stöðum, merkingar bættar og gönguleiðin að vögnum fyrir farþega sem eru að koma úr flugi er nú yfirbyggð. Eftir breytingar verða þrjár stoppistöðvar við flugstöðina en í dag er ein stoppistöð.

Breytingarnar taka til leiðar 55 sem ekur milli BSÍ og/eða Fjarðar til Keflavíkurflugvallar og leiðar 89 sem ekur milli Reykjanesbæjar/Suðurnesjabæjar og Keflavíkurflugvallar. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi fimmtudaginn 1. október nk.

Leið 55 – helstu breytingar

  • Ný stoppistöð fyrir brottfararfarþega (KEF Brottfarir). Ný stoppistöð tekin í notkun brottfararmegin við flugstöðina fyrir farþega á leið í flug. Leið 55 ekur alla leið inn að flugstöðinni og hleypir út farþegum á sama stað og flugrútur. Ekki verður hægt að stíga um borð í vagna á þessari stöð.
  • Ný stoppistöð fyrir komufarþega (KEF Komur). Ný stöð tekin í notkun komumegin á sérmerktu stæði. Byggt hefur verið yfir gönguleiðina frá flugstöðinni til að skýla farþegum sem eru að koma úr flugi fyrir veðri og vindum.
  • Bættar merkingar. Allar merkingar inni í flugstöðinni og utan dyra á stoppistöðvum og gönguleiðum hafa verið bættar og endurgerðar.
  • Auðveldara að flytja hjól. Hægt er að taka með reiðhjól um borð á nokkrum algengum brottfarartímum hjá leið 55 (fimm brottfarartímar af tólf).
  • Greiðslur. Hægt er að greiða bæði með reiðufé eða snertilausum greiðslukortum.
  • Sérstök kjör. Hægt er að kaupa áskriftarkort í landsbyggðarstrætó.

Að öðru leyti verða farþegar ekki varir við breytingar á leið 55 og allar tímasetningar á akstursleiðinni eru óbreyttar.

Kjóavellir nýtt heiti á stoppistöð fyrir leið 89

Akstursleið og tímatafla leiðar 89, sem gengur frá Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ til flugvallarins er óbreytt. Stoppistöðin sem leið 89 stoppar við fær nýtt nafn, Kjóavellir (stöðin hét áður KEF-Airport). Stæði fyrir leið 89 verður áfram á sama stað og áður en til stendur að bæta þá aðstöðu.