Sunnudaginn 1. mars verða breytingar á leiðakerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Tímatöflum á leiðum 13, 14, 15 og 19 verður breytt til að bæta áreiðanleika þeirra og auka þar með stundvísi. Einnig mun bætast við ný biðstöð við Perluna á leið 18 til að auka aðgengi farþega að Perlunni. Leiðir 35 og 36 munu aka nær Sky Lagoon, sem auðveldar aðgengi fyrir farþega og þeirra sem búa og starfa við Bakkabraut en ný biðstöð við Bakkabraut verður tekin í notkun.
Þessar breytingar eru liður í vegferð Strætó í að bæta þjónustu sína og kemur í kjölfar þjónustuaukningar sl. sumar sem var mikil ánægja með. Strætó er sífellt að skoða með hvaða hætti hægt er að bæta þjónustuna og mun m.a. halda tímatöflulagfæringum áfram á næstunni.
Allar breytingar
Leiðir 13, 14, 15 og 19
Tímatöflum breytt til að auka stundvísi.
Nýjar tímatöflur frá 1. mars
Leið 18
Leið 18 mun aka nær Perlunni í átt frá Skúlagötu en markmiðið er að bæta aðgengi farþega að Perlunni.
Ný biðstöð bætist við sem mun bera nafnið: Perlan. Biðstöðin sem heitir núna Perlan mun skipta um nafn og heita: Litlahlíð.
Ný akstursleið:

Leiðir 35 og 36
Leiðir 35 og 36 munu aka nær Sky Lagoon en markmiðið er að stytta gönguvegalengd fyrir farþega sem ætla í Sky Lagoon og þá sem búa og starfa í grennd við Bakkabraut.
Ný akstursleið:
