Ársfundur Strætó verður haldinn fimmtudaginn 22. maí. Fundurinn hefst kl. 14:00 og verður í Tjarnarsal, Ráðhúsi Reykjavíkur.
Farið verður yfir það helsta í starfi Strætó frá árinu 2024 ásamt ársreikningi auk erinda sem snúa að almenningssamgöngum. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Allir eru velkomnir á fundinn og hvetjum við sérstaklega Strætónotendur sem hafa tök á til að koma og kynna sér málin.
Léttar veitingar verða í boði.