Fréttir
16. apríl 2026

Alþjóðlegur dagur almenningssamgangna haldinn í fyrsta sinn 17. apríl

Strætó fagnar alþjóðlegum degi almenningssamgangna sem haldinn verður í fyrsta sinn þann 17. apríl 2026. Dagurinn er alþjóðlegt framtak á vegum UITP, alþjóðasamtaka almenningssamgangna, sem varpar ljósi á mikilvægi almenningssamgangna fyrir daglegt líf, samfélag og umhverfi. Á þessum degi mun Strætó hvetja fólk og farþega til að deila upplifun sinni af notkun fjölbreyttra ferðamáta.

Markmiðið er að fagna því hlutverki sem almenningssamgöngur gegna – að koma fólki á milli staða, í vinnu, nám og afþreyingu – og minna á fólkið sem gerir almenningssamgöngur mögulegar. Yfirskrift átaksins í ár er: Einn dagur. Milljónir ferða.

Almenningssamgöngur gegna lykilhlutverki í að byggja upp grænni og skilvirkari borgir. Þær draga úr umferð og bæta loftgæði. Á hverjum degi eru farnar milljónir ferða með almenningssamgöngum um allan heim.

Strætó hefur á undanförnum árum stigið markviss skref í átt að vistvænni rekstri með kaupum á rafvögnum og stefnir að kolefnislausum flota fyrir árslok 2029.

Af þessu tilefni er kjörið að staldra við og hugsa um þau skipti sem við höfum tekið Strætó eða aðrar almenningssamgöngur – og það hlutverk sem almenningssamgöngur gegna í að halda samfélaginu gangandi. #WorldPublicTransportDay.